Einsöngur og helg stund

Sunnudagskvöldið 18. júní kl. 20 fer fram kvöldmessa í Bústaðakirkju. Um er að ræða helgihald með látlausu formi og einsöng. Marteinn Snævarr Sigurðsson syngur einsöng og leiðir almennan söng, ásamt Jónasi Þóri kantor. 

Marteinn Snævarr Sigurðsson syngur

Marteinn Snævarr Sigurðsson syngur einsöng og leiðir almennan safnaðarsöng, ásamt Jónasi Þóri, kantór. 

Séra Hildur Björk Hörpudóttir prédikar og þjónar

Séra Hildur Björk Hörpudóttir sóknarprestur í Reykholti leysir af þennan sunnudag og þjónar ásamt messuþjónum. Verið hjartanlega velkomin í kvöldmessu í Bústaðakirkju.

Umsjónaraðili/-aðilar