Guðsþjónusta kl. 13 sunnudaginn 18. október
Á sunnudaginn fær unga fólkið að njóta sín við helgihaldið í bleikum október.
Hljóðfæranemendur Tónskólans í Reykjavík leika vel valin verk.
Olga María Rúnarsdóttir syngur.
Jónas Þórir kantor kirkjunnar og sr. Sigríður Kristín leiða stundina ásamt messuþjónum.
Verið velkomin á Listahátíð barna í bleikum október í Bústaðakirkju.
Listahátíð barnanna - Bleikur október í Bústaðakirkju
Listahátíð barnanna er hluti af dagskrá Bleiks októbers í Bústaðakirkju.
Í hádeginu á miðvikudögum eru tónleikar til styrktar Ljósinu. Þá er bleika slaufan einnig til sölu. Frítt er inn á tónleikana en tekið er við frjálsum framlögum. Jónas Þórir, kantor kirkjunnar hefur sett saman glæsilega dagskrá og allur ágóði rennur til Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess.