Kvöldmessa í söng og gleði

Við kvöldmessuna 16. júlí í Bústaðakirkju kl. 20 þjóna Hólmfríður Ólafsdóttir djákni og Jónas Þórir kantor ásamt Eiríki Hreini Helgasyni söngvara og messuþjónum. Verum velkomin á notalega stund í kirkjunni okkar. 

Í versi vikunnar segir (sjá Jes 43.1): ,,Óttast þú ekki því að ég frelsa þig, ég kalla þig með nafni, þú ert mín."

Það er Hólmfríður Ólafsdóttir sem málaði þessi fallegu listaverk sem fylgja með fréttinni. 

Ath. engin messa er í Grensáskirkju vegna sumarleyfa.