Kvöldmessa í Bústaðakirkju
Kvöldmessa verður í Bústaðakirkju sunnudaginn 14. júní kl. 20:00.
Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór og Jónas Þórir gleðja viðstadda með söng og tónlistarflutningi. Séra Laufey Brá Jónsdóttir flytur hugvekju og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.
Sunnudagshelgihaldið yfir sumartímann í Bústaðakirkju er að kveldi og er stemningin að jafnaði ljúf og hátíðleg.
Verið hjartanlega velkomin í kvöldmessu í Bústaðakirkju.
„Komið til mín, öll þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld.“ (Matt 11.28)
Umsjónaraðili/-aðilar