Kvöldmessur og einsöngur í hverri viku
Í Bústaðakirkju verður boðið upp á kvöldmessur í sumar, öll sunnudagskvöld kl. 20:00. Í kvöldmessunum er andrúmsloftið lágstemmt en heilagt. Ljúfar stundir með einsöng, hugleiðingu, bænagjörð og öllu því sem hefðbundnar guðsþjónustur skarta.
Anna Klara Georgsdóttir söngkona
Anna Klara Georgsdóttir söngkona
Anna Klara Georgsdóttir söngkona mun syngja fyrir viðstadda sunnudaginn 5. júlí kl. 20. Auk einsöngsins mun Anna Klara leiða almennan safnaðarsöng undir stjórn Jónasar Þóris kantors kirkjunnar.
Sr. Sigríður Kristín flytur hugvekju og leiðir stundina á sunnudaginn ásamt messuþjónum.
Endilega fylgist með og takið þátt.
Umsjónaraðili/-aðilar