Jólalögin sungin í fjölskyldumessu í Bústaðakirkju

Fjölskylduguðsþjónusta fer fram í Bústaðakirkju sunnudaginn 17. desember nk. kl. 11. 

Jólin nálgast og við fögnum því auðvitað hátíðlega í kirkjunni. Ragna Maren Ólafsdóttir, tónlistarnemi, mun spila á píanó lagið "Eitt lítið jólalag" eftir Magnús Kjartansson. Jólalög og jólasálmar verða sungnir. Séra Danni, Kata og Iðunn leiða stundina ásamt messuþjónum, og Jónasi Þóri, sem leikur á flygil.

Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju á aðventunni.