Jólaball í Bústaðakirkju

Verið hjartanlega velkomin á jólaball barnastarfsins í Bústaðakirkju miðvikudaginn 27. desember kl. 15.

Skemmtileg fjölskyldustund þar sem verður sungið og dansað í kringum jólatréð. Rauðklæddur gestur kemur í heimsókn með góðgæti í poka.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Jólasveinar einn og átta,
ofan komu af fjöllunum,
í fyrrakvöld þeir fóru að hátta,
fundu hann Jón á Völlunum.

Andrés stóð þar utan gátta,
það átti að færa hann tröllunum.
Þá var hringt í Hólakirkju
öllum jólabjöllunum.