Guðsþjónusta í Bústaðakirkju

Guðsþjónusta fer fram í Bústaðakirkju sunnudaginn 7. apríl nk. kl. 13. Kammerkór Bústaðakirkju syngur undir stjórn Jónasar Þóris organista. Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Sæberg Sigurðsson syngja einsöng. Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Messutón Bjarna Þorsteinssonar verður notað, en útvarpsmessa dagsins á Rás eitt verður úr Bústaðakirkju. Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju á fyrsta sunnudegi eftir páska. 

Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór

Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór, mun flytja "What a wonderful world" með íslenskum texta Kristjáns Hreinssonar "Þetta er yndislegt líf".

Sæberg Sigurðsson barítónn

Sæberg Sigurðsson barítónn mun flytja lagið "Fögnuður", sem er texti Matthíasar Johannesen við lag Jónasar Þóris. 

Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju

Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju.