Séra Guðbjörg Jóhannesdóttir prófastur setur í embætti
Sunnudaginn 24. ágúst nk. kl. 20 fer fram kvöldguðsþjónusta í Bústaðakirkju. Séra Guðbjörg Jóhannesdóttir prófastur Reykjavíkurprófastsdæmis vestra mun í guðsþjónustunni setja séra Sigríði Kristínu Helgadóttur og séra Laufeyju Brá Jónsdóttur í prestsembætti í Fossvogsprestakalli.
Fermingarbörnum og foreldrum er sérstaklega boðið til helgihaldsins því strax að því loknu verður haldinn upplýsingafundur með fermingarbörnum og foreldrum þeirra varðandi fræðslustörfin framundan.
Séra Sigriður Kristín Helgadóttir prédikar, séra Laufey Brá Jónsdóttir og séra Þorvaldur Víðisson þjóna fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Jónasar Þóris, organista.
Boðið verður upp á kaffiveitingar að athöfn lokinni.
Verið hjartanlega velkomin í innsetningarmessu í Bústaðakirkju.

Fermingarbörn og foreldrar boðin sérstaklega velkomin