Verum velkomin til guðsþjónustu kl. 13 í Bústaðakirkju við upphaf föstu. Sr. María G. Ágústsdóttir þjónar ásamt messuhópi, Jónasi Þóri kantor og félögum úr Kammerkór Bústaðakirkju. Við höldum áfram að syngja sálma við lög eftir Jóhann Helgason - Við freistingum gæt þín og Drottinn vakir.