Bústaðakirkja - guðsþjónusta kl. 13
Sunnudaginn 27. september kl. 13 er guðsþjónusta í Bústaðakirkju.
Jónas Þórir og félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju leiða söfnuðinn í söng.
Sr. Sigríður Kristín þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.
Fögrudyr
Síðari ritningarlestur næsta sunnudags hefst á þessum orðum: "Pétur og Jóhannes gengu upp í helgidóminn til síðdegisbæna. Þá var þangað borinn maður, lami frá móðurlífi, er dag hvern var settur við þær dyr helgidómsins sem nefndar eru Fögrudyr til að beiðast ölmusu af þeim er inn gengu í helgidóminn."
Orðið eða heitið Fögrudyr er fallegt.
Ætli Matthías Jochumsson sé að vitna til þessa orðs, Fögrudyr í eftirfarandi erindi úr sálminum Lýs, milda ljós?
Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér,
þú logar enn,
í gegnum bárur, brim og voðasker.
Nú birtir senn.
Og ég finn aftur andans fögru dyr
og engla þá sem barn ég þekkti fyrr.
Hvað er það sem brúar bilið milli Guðs og manns? Er það e.t.v. barnatrúin eins og Matthías heldur fram í sálminum góða?