Gleðidagarnir í kirkjunni – Góði hirðirinn
Guðsþjónusta fer fram í Bústaðakirkju sunnudaginn 19. apríl nk. kl. 13:00. Félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Ástu Haraldsdóttur, organista, sem leysir Jónas Þóri af þennan sunnudag.
Séra Laufey Brá Jónsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.
Þessi sunnudagur er annar sunnudagur eftir páska, og kallast sá tími kirkjuársins gleðidagar.
Verið hjartanlega velkomin til guðsþjónustu í Bústaðakirkju.
Gleðidagar eru sérstakt tímabil í kirkjuárinu. Dagarnir frá páskum og fram að hvítasunnu kallast gleðidagar. Eftir tímabil iðrunar og íhugunar á föstunni tekur við 40 daga gleðitímabil þar sem textar kirkjunnar eru vonarríkir og endurspegla vorið og þá von sem birtist okkur á þessum árstíma.
Umsjónaraðili/-aðilar