Föstudagurinn langi í Bústaðakirkju

Píslarsagan 
 
Á föstudaginn langa er guðsþjónusta í Bústaðakirkju kl. 13.  Við heyrum lestra úr Jóhannesarguðspjalli og minnumst þjáningar Krists.  
Lestrana annast messuþjónar ásamt sr. Sigríði Kristínu.  
Jónas Þórir kantor kirkjunnar og Hjörleifur Valsson fiðluleikari flytja tónlist.  
Verið hjartanlega velkomin.
 
„En Guð auðsýnir kærleika sinn til okkar í því að Kristur dó fyrir okkur þegar við vorum enn syndarar.“ (Róm 5.8)