Fögnum fjölbreytileikanum.
Sunnudaginn 9. ágúst komum við saman í Bústaðakirkju og fögnum fjölbreytileikanum í regnbogamessu kl. 20.
Halla Þórlaug Óskarsdóttir, rithöfundur, myndlistarkona og fjölmiðlakona, flytur hugvekju kvöldsins. Tenórinn Jóhann Friðgeir Valdimarsson syngur ljúfa tóna og Jónas Þórir leikur á flygilinn.
Sr. Laufey Brá Jónsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.
Verið hjartanlega velkomin til okkar í Bústaðakirkju.
Umsjónaraðili/-aðilar