Fjölskyldumessa í Bústaðarkirkju

Sunnudaginn 8. september kl. 11 verður guðsþjónusta í Bústaðarkirkju, fjölskyldumessa sem sniðin er að fólki á öllum aldri. Sungnir verða gömlu, góðu barnasálmarnir í bland við skemmtilegu sunnudagaskólalögin. Jónas Þórir situr við flygilinn og félagar úr Kammerkór Bústaðarkirkju leiða söng.  Marteinn Snævarr Sigurðsson tenór mun gleðja viðstadda og syngja hið undurfallega lag Þitt fyrsta bros.  Sr. Sigríður Kristín leiðir stundina.