Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11
Í maí verða fjölskylduguðsþjónustur í kirkjunni kl. 11.
Næstkomandi sunnudag, 10. maí kl. 11 komum við saman og eigum góða stund. Jónas Þórir leiðir söfnuðinn í söng ásamt kvartett úr Kammerkór Bústaðakirkju. Sr. Laufey Brá og leiðtogar í sunnudagaskólanum taka vel á móti fólki á öllum aldri. Við syngjum , bregðum á leik og heyrum sögu úr Biblíunni.
Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju.
Umsjónaraðili/-aðilar