Vetrarstarfið í Bústaðakirkju er að hefjast
Fjölskyldumessa í Bústaðakirkju sunnudaginn 6. september kl. 11 markar upphaf vetrarstarfsins. Margt áhugavert er á dagskrá í vetur sbr. foreldramorgnar, félagsstarf eldri borgara, prjónahópur, karlakaffi, sunnudagaskóli og kvenfélagsfundir. Þá er stefnan einnig tekin á Bleikan október þar sem hádegistónleikar á miðvikudögum til styrktar Ljósinu verða á dagskrá.
Á sunnudaginn þjónar sr. Sigríður Kristín fyrir altari. Hjörtur Ingvi Jóhannsson tónlistarmaður og Kammerkór Bústaðakirkju leiða söfnuðinn í söng.
Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju.
Jesús læknar á hvíldardegi
Sunnudagurinn 6. september er 14. sunnudagur eftir þrenningarhátíð skv. kirkjuárinu.
Í guðspjalli dagsins fáum við að heyra af því er Jesús læknar mann á hvíldardegi.
Jesús segir við hann: „Statt upp, tak rekkju þína og gakk!“ Jafnskjótt varð maðurinn heill, tók rekkju sína og gekk.
En þessi dagur var hvíldardagur og menn sögðu við hinn læknaða: „Í dag er hvíldardagur. Þú mátt ekki bera rekkjuna.“ (Jóh.5.8-10)
Þar sem um fjölskylduguðsþjónustu er að ræða þá verður formið með einfaldara sniði en venja er og sálmar valdir með það í huga að öll geti sungið með.
Sjáumst í Bústaðakirkju.