Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11
Gleðilegt sumar.
Í maí verða fjölskylduguðsþjónustur í kirkjunni kl. 11.
Næstkomandi sunnudag, 3. maí kl. 11 komum við saman og eigum góða stund. Jónas Þórir leiðir söfnuðinn í söng ásamt kvartett úr Kammerkór Bústaðakirkju. Sr. Sigríður Kristín og leiðtogar í sunnudagaskólanum taka vel á móti fólki á öllum aldri. Við syngjum um lóuna og heyrum sögu úr Biblíunni.
Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju.
Kvöldguðsþjónustur yfir sumartímann
Kvöldguðsþjónustur yfir sumartímann
Síðasta sunnudag í maí færum við okkur yfir á sumartaktinn og þá verða guðsþjónustur í Bústaðakirkju kl. 20.
Vers vikunnar á kirkjan.is:
„Syngið Drottni nýjan söng því að hann hefur unnið dásemdarverk, hægri hönd hans hjálpaði honum og heilagur armur hans.“ (Slm 98.1)
Umsjónaraðili/-aðilar