Fyrsti fermingardagur vorsins

Sunnudaginn 26. mars nk. hefjast fermingar í Bústaðakirkju. Löng hefð er fyrir því að fermingardagarnir í Bústaðakirkju séu sunnudagurinn fyrir pálmasunnudag, pálmasunnudagur og annar í páskum. 

Fermingarbörn vorsins í Bústaðakirkju munu fermast í fimm athöfnum, sunnudaginn 26. mars nk. kl. 10:30 og kl. 13:00, á pálmasunnudag 2. apríl kl. 10:30 og kl. 13:00 og síðan á öðrum degi páska, 10. apríl kl. 11:00.

Félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju munu syngja undir stjórn Jónasar Þóris, kantórs kirkjunnar. Séra Eva Björk Valdimarsdóttir og séra Þorvaldur Víðisson þjóna fyrir altari ásamt messuþjónum. Kvenfélagskonur aðstoða fermingarbörnin í kirtlana og við framkvæmd altarisgöngunnar. 

Það er mikil hátíð í kirkjunni þegar fermingar standa yfir. Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í helgihaldinu, en engin takmörk eru fyrir fjölda þátttakenda með hverju fermingarbarni. 

Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í hátíðinni