Haustferð félagsstarfsins verður farin miðvikudaginn 16. sept kl 12:30

 Haldið verður í nágranna sveitafélagið Mosfellsbæ og þar verður Ásgarður heimsóttur( vinnustaður fatlaðra) og fáum við að vita allt um starfsemina og listaverkin sem eru framleidd þar. Þaðan liggur leið upp í Mosfellsdal þar sem Dalsgarður verður heimsóttur, Gísli rósabóndi tekur þar á móti okkur og sýnir og okkur ræktunarstöðina. 

Kaffi og með því snætt í golfskálanum í Mosó, Blik bistro og að endingu förum við á Lágafellskirkju þar sem að séra Arna Grétarsdóttir tekur á móti okkur.Skráning er hjá Hólmfríði djákna, holmfridur@kirkja.is

Verð 5000kr

Umsjónaraðili/-aðilar