Ragnhildur Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Pieta samtakanna er gestur dagsins

Opið hús á miðvikudag frá kl 13-16, góð samvera þar sem boðið er uppá slökun, spil og steinamálun. Kaffið góða á sínum stað frá Andreu og gestur dagsins tekur til máls um kl 14:30. Ragnhildur Ásgeirsdóttir er framkvæmdastjóri Pieta samtakanna en þau samtök veita meðferð fyrir þá sem eru í sjálfsvígshættu eða sjálfsskaða, viðtöl og stuðning við aðstandendur þeirra og aðstandendur sem hafa misst. Gulur september hefur verið tileinkaður fræðslu um þessi málefni. 

Við hlökkum til að taka á móti Ragnhildi og fræðast um þessi mikilvægu samtök. 

.

Umsjónaraðili/-aðilar