Elvis Ísland í Bústaðakirkju

Elvis Ísland kemur í heimsókn í eldriborgarastarfið í Bústaðakirkju miðvikudaginn 11. nóvember nk. kl. 14:00. 

Það verður ógleymanleg stund þegar Kóngurinn sjálfur rífur upp stemmninguna með söng og skemmtun.

Dagskráin hefst kl. 13:00 með slökun, púsli, spilum og spjalli og síðan verða kaffiveitingar um klukkan 14:30.

Verið hjartanlega velkomin til þátttöku og takið vini ykkar með. 

 

Félagsstarf eldri borgara í Bústaðakirkju

Dagskráin er glæsileg í eldriborgarastarfinu.  Og kaffiveitingarnar ekki síðri en Andrea Þóra Ásgeirsdóttir kirkjuhaldari sér um veitingar. 

Verið hjartanlega velkomin í eldri borgarastarfið í Bústaðakirkju á miðvikudögum kl. 13 - 16.