Hádegistónleikar, sóprönur syngja, gestur í félagsstarfi er sr. Skúli Ólafsson

Hádegistónleikar hefjast kl 12:05 þar sem að sópran söngkonurnar Bernadette Hegyi, Edda Austmann og Gréta Hergils syngja undir stjórn Jónasar Þóris organista. Súpa í safnaðarsal á eftir og í beinu framhaldi flytur séra Skúli S. Ólafsson erindi undir yfirskriftinni: Hvað fyllti skarð dýrðlinganna? Sálarheill og sálarró á 17. öld. Kaffið á sínum stað, hlökkum til að sjá ykkur sem flest.