Bókakynning og upplestur í Bústaðakirkju

Miðvikudaginn 2. desember kl. 13:00-16:00

María Elísabet Bragadóttir verður gestur í félagsstarfi eldri borgara í Bústaðakirkju kl. 14:00 og les úr fyrstu skáldsögu sinni, Þúsund barna móðir.

„Ísafold gekk í björg sjö ára gömul og dvaldi þar í sólarhring. Löngu síðar lifir hún rólegu lífi, þar til systur hennar fer að gruna að móðir þeirra sé komin með heldur ungan kærasta. Þá fer af stað fjölskyldusaga þar sem hversdagslífið fléttast saman við dulúð klettanna“.

María Elísabet hefur áður sent frá sér smásagnasöfnin Herbergi í öðrum heimi og Sápufuglinn. Gísli Marteinn sagði um skáldsöguna í Vikunni með Gísla Marteini:

„Mér fannst hún æði. Mér fannst hún alveg rosalega skemmtileg.“

Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju!

Félagsstarf eldri borgara í Bústaðakirkju

Félagsstarf eldri borgara í Bústaðakirkju er alla miðvikudaga kl. 13:00 - 16:00.

Vísnagátan er á sínum stað ásamt hugvekju og bæn.

Andrea Þóra Ásgeirsdóttir töfrar að vanda fram dýrindis kaffiveitingar (kr. 500,-).

Verið hjartalega velkomin í Bústaðakirkju og takið vina ykkar með!