Bleik messa í Bústaðakirkju- Lífið er fegurð og gleði.
Guðsþjónusta dagsins ber bleikan blæ í tilefni Bleiks októbers. Séra Laufey Brá Jónsdóttir þjónar fyrir altari ásamt kirkjuþjónum. Séra Auður Pálsdóttir, sjúkrahúsprestur, prédikar.
Konur úr Kammerkór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Jónasar Þóris organista. Gréta Hergils sópran og Laufey Geirlaugsdóttir syngja einsöng.
Bleikur október stendur yfir í Bústaðakirkju og fara hádegistónleikar fram alla miðvikudaga í október kl. 12:05. Á tónleikunum í október munum við hlýða á Sálmadjass með Sigurði Flosa og félögum, Sóli Hólm leikur af fingrum fram, Íris Björk Gunnarsdóttir og Herdís Anna Jónasdóttir leiða okkur inn í heim óperunnar og Örn Árnason og Jónas Þórir flytja vel valdar revíur og gamanmál.
Ókeypis er á hádegistónleikana en tekið verður við frjálsum framlögum til Ljóssins, endurhæfingarmiðstöðvar fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein.
Yfirskrift Bleiks októbers að þessu sinni er „Lífið er fegurð og gleði“.
Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju í Bleikum október.