Barnamessa í Bústaðakirkja kl. 11 - Fræ í góðum jarðvegi

Verið öll velkomin í fyrstu hefðbundnu barnamessu vetrarins í Bústaðakirkju á sunnudaginn kl. 11.

Við ætlum að heyra söguna um manninn sem að sáði. Við erum þó ekki að tala um hann Adam sem að átti synina sjö. Heldur erum við að tala um sáðmanninn sem að Jesús sagði frá. Sum fræin enduðu í slæmum jarðveg en önnur í góðum. Hver er munurinn?

Um stundina sjá Danni, Hilda, María og Jónas Þórir. Hlökkum til að sjá ykkur.