Barnamessa í Bústaðakirkju 8. október

Barnamessan verður á sínum stað næsta sunnudag, 8. október, í Bústaðakirkju kl. 11. Danni, Hilda og sr. Eva leiða stundina. Jónas Þórir verður á flyglinum. 

Við munum heyra söguna um miskunnsama Samverjann og hvers vegna við viljum líkjast honum. Rebbi refur kíkir í heimsókn og Freyja einhyrningur fer á flakk. Verið öll hjartanlega velkomin.