Rebbi mætir í Barnamessu

Regnboga Rebbi hringdi og vildi láta vita að hann ætlar að koma á sunnudaginn! Þá er því komið til skila. En það verður sem sagt Barnamessa kl. 11:00 í Bústaðakirkju. Daníel Ágúst, Iðunn, Rebbi refur og sr. Eva Björk þjóna. Við syngjum skemmtileg lög og heyrum biblíusögu. Jónas Þórir leikur með á flygilinn.