Anna Sigga ásamt píanóleikara og lágfiðluleikara
Laugardaginn 7. júní kl. 16 verður íslensk-amerísk tónlistarveisla í Bústaðakirkju. Anna Sigríður Helgadóttir, messósópran syngur ásamt Daniel Rieppel píanóleikara og Lawrence B Wheeler lágfiðluleikara. Daniel er frá Minneapolis og Lawrence frá Houston í Texas í Bandaríkjunum.
Á efnisskrá verða m.a. sönglög J. Brahms ásamt verkum fyrir lágfiðlu og píanó. Tónleikarnir eru ókeypis og öllum opnir.
Daniel kynntist Íslandi í gegnum vin sinn Bill Holm sem var Vestur Íslendingur. Í gegnum þau kynni hittust þau Anna Sigríður söngkona og fóru þau að músísera saman. Lawrence (Larry) er af íslensku bergi brotinn en móðir hans var Jenfrid Amanda Kristjánsdóttir. Báðir þessir herramenn eru fyrrverandi prófessorar í tónlist og elska land okkar og þjóð.
Þessi sami hópur kemur svo fram í kvöldmessu í Bústaðakirkju, sunnudaginn 8. júní kl. 20:00 ásamt kantor kirkjunnar, Jónasi Þóri sem er frændi Larrys.
Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir leiðir kvöldmessuna.
Verið hjartanlega velkomin á tónleika og í kvöldmessu í Bústaðakirkju.

Tónleikar og kvöldmessa