Mörkin - Guðsþjónusta 11. janúar kl. 14

Guðsþjónusta fer fram á hjúkrunarheimilinu Mörkinni sunnudaginn 11. janúar kl. 14:00. 

Kristín Waage organisti mun leika á píanó og leiða tónlist og söng. 

Séra Sigríður Kristín Helgadóttir prédikar og þjónar fyrir altari. 

Prestar Fossvogsprestakalls annast um mánaðarlegar guðsþjónustur á Mörkinni í samstarfi við starfsfólk og stjórnendur Markar. 

Verið hjartanlega velkomin í guðsþjónustu á hjúkrunarheimilinu Mörk.