Krílasálmar

Krílasálmanámskeið hefst í Grensáskirkju mánudaginn 16. febrúar nk. kl. 10 og verður einu sinni í viku, alla mánudaga, í sex vikur til og með 23 mars.

Námskeiðið er ætlað ungabörnum á aldrinum þriggja mánaða til eins árs. Krílasálmastundirnar eru dásamlegar samverustundir barna og foreldra þeirra þar sem mikið er sungið og leikið. Á námskeiðinu er unnið með skynjun og upplifun, tónlistararfinn og menninguna. Sungnir eru sálmar og lög kirkjunnar, þekkt barnalög og kvæði, leikið, dansað og hlustað í notalegu umhverfi kirkjunnar. Fjöldi þátttakenda takmarkast við tólf börn.

Ragnheiður Bjarnadóttir tónlistarkennari og séra Laufey Brá Jónsdóttir annast dagskrána.

Skráning fer fram hjá séra Laufeyju og er þátttaka öllum að kostnaðarlausu. Þið skráið ykkur með því að senda póst á laufey@kirkja.is  

Verið hjartanlega velkomin á krílasálmanámskeið í Grensáskirkju