Konudagurinn er að þessu sinni sunnudaginn 19. febrúar. Af því tilefni syngjum við sálma með lögum eða ljóðum eftir konur. Antonía Hevesi leikur á píanó og orgel og Kirkjukór Grensáskirkju leiðir okkur í söngnum. Prestur er sr. María G. Ágústsdóttir og messuþjónar lesa lestra og bænir ásamt annarri þjónustu. Verum velkomin til kirkju á konudaginn, sem jafnframt er sunnudagur í föstuinngang og bolludagur, sprengidagur og öskudagur framundan.