Kirkjan vettvangur allra

Messa fer fram í Grensáskirkju annan sunnudag eftir þrenningarhátíð, 29. júní nk. kl. 11:00. Kirkjukór Grensáskirkju syngur undir stjórn Ástu Haraldsdóttur organista. Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Gengið verður til altaris. 

Á þessum sunnudegi kirkjuársins er fjallað um altarissakramentið í guðspjalli dagsins, þar sem kemur fram að allar manneskjur eru velkomin að borði Drottins. Þá er lesið úr Lúkasarguðspjalli ein af dæmisögum Jesú. 

Verið hjartanlega velkomin til messu í Grensáskirkju á öðrum sunnudegi eftir þrenningarhátíð.

...og þú líka!