Á aðfangadagskvöld kl. 18 hringjum við jólin inn og söfnumst saman til hátíðarguðsþjónustu í Grensáskirkju. Sr. María G. Ágústsdóttir þjónar ásamt Ástu Haraldsdóttur kantor og Kirkjukór Grensáskirkju. Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran syngur einsöng. Verum velkomin til hátíðarstundar í Grensáskirkju.