Kirkjan í Odda og veðrið, maður minn
Hópur eldri borgara úr Fossvogsprestakalli lagði land undir fót miðvikudaginn 22. maí sl. Ferðinni var heitið í Odda á Rangárvöllum.
Áður en þangað var komið naut hópurinn þess að heimsækja Sagnagarðinn, þangað sem skemmtilegt var að koma.
Séra Elína Hrund Kristjánsdóttir sóknarprestur í Odda tók á móti hópnum í Oddakirkju. Veðrið skartaði sínu fegursta, eins og sést á þessari mynd af kirkjunni, sem Erla Þorleifsdóttir tók.
Séra Elína Hrund leiddi góða stund í kirkjunni, áður en haldið var í Kragann, safnaðarheimilið sem stendur við hliðina á kirkjunni.
Í Kraganum hafði Kvenfélagið útbúið dýrindis kaffiveitingar fyrir hópinn.
Hólmfríður Ólafsdóttir djákni skipulagði ferðina, sem tókst með eindæmum vel.
Við þökkum öllum fyrir samveruna í vorferð eldri borgarastarfsins í Fossvogsprestakalli og við þökkum gestrisni og góðar móttökur í Odda.
Sagnagarður
Hópurinn naut þess að heimsækja Sagnagarðinn, þangað sem skemmtilegt var að koma.
Dýrindis veitingar, þakkir til Kvenfélagsins í Odda
Séra Elína Hrund leiddi góða stund í kirkjunni, áður en haldið var í Kragann, safnaðarheimilið sem stendur við hliðina á kirkjunni.
Í Kraganum hafði Kvenfélagið útbúið dýrindis kaffiveitingar fyrir hópinn.
Þakkir til skipuleggjenda