Vinir Hjálparstarfs kirkjunnar koma saman
Vinir Hjálparstarfs kirkjunnar koma saman á ný í safnaðarheimili Grensáskirkju mánudaginn 27. mars kl. 12:00 og snæða saman. Öll sem áhuga hafa á starfi Hjálparstarfs kirkjunnar og vilja leggja starfinu lið eru hjartanlega velkomin.
Einstakt tækifæri til að fræðast um starfið, frá fyrstu hendi
Vinir Hjálparstarfs kirkjunnar koma saman á ný í safnaðarheimili Grensáskirkju mánudaginn 27. mars kl. 12:00 og snæða saman. Öll sem áhuga hafa á starfi Hjálparstarfs kirkjunnar og vilja leggja starfinu lið eru hjartanlega velkomin.
Skráning
Tilkynna þarf þátttöku á netfangið help@help.is eða í síma 528 4400 fyrir kl. 9:00 fimmtudaginn 23. mars, þ.e.a.s. á morgun. Verð fyrir máltíðina er 2.000 kr. og mun afraksturinn renna til Hjálparstarfs kirkjunnar. Umsjón með matseldinni hefur Kristín Hraundal kirkjuvörður.
Nýjar og áhugaverðar upplýsingar
Yfir hádegisverðinum mun Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, segja frá verkefnum Hjálparstarfsins í Úganda en þegar hópurinn snæðir saman verður hann nýkominn heim úr vinnuferð til landsins.
Hugmyndin
Hugmyndin að baki samverunum er að fólk geti hist stutt í hádeginu, borðað saman og rætt málefni Hjálparstarfsins og hvernig hver og einn og hópurinn í heild sinni geti stutt við starfið. Hugmyndin kviknaði hjá séra Bjarna Þór Bjarnasyni og með honum í undirbúningshópnum eru Halldór Kristinn Pedersen og Erik Pálsson, auk starfsfólks Hjálparstarfs kirkjunnar og presta og starfsfólks Grensáskirkju.
Hjartanlega velkomin
Öll sem hafa áhuga á starfi Hjálparstarfs kirkjunnar og vilja leggja starfinu lið eru hjartanlega velkomin.