TTT í Grensáskirkju
Tíu til tólf ára starfið eða TTT í Grensáskirkju er eins og nafnið gefur til kynna starf fyrir börn á aldrinum 10-12 ára eða í 5.-7. bekk. Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarblaðið, sem fylgir þessari frétt, einnig hægt að fylla það út hér á heimasíðunni, kirkja.is, eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is. Börnin mæta sjálf í starfið í safnaðarheimili Grensáskirkju en gengið er inn um aðaldyr kirkjunnar.
Hér er hægt að skrá sig í starfið https://kirkja.is/skraningar/ttt
Yfirskirftin að þessu sinni er Sjö gildi í góðum samskiptum. Við munum vinna með sjö jákvæð gildi í samskiptum með því að segja sögur og skapa list sem tengjast gildunum. Við munu þannig efla tengsl barnanna og skilning á gildunum og styrkja sjálfsmynd þeirra.
Gildin sem fjallað verður um eru: vinátta, fyrirgefning, samkennd, gleði, traust, virðing og þakklæti.
TTT í Grensáskirkju
Tíu til tólf ára starfið eða TTT í Grensáskirkju er eins og nafnið gefur til kynna starf fyrir börn á aldrinum 10-12 ára eða í 5.-7. bekk. Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarblaðið, sem fylgir þessu bréfi, einnig hægt að fylla það út á heimasíðu kirknanna, kirkja.is, eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is. Börnin mæta sjálf í starfið í safnaðarheimili Grensáskirkju en gengið er inn um aðaldyr kirkjunnar.
Hér er hægt að skrá sig í starfið https://kirkja.is/skraningar/ttt
Yfirskirftin að þessu sinni er Sjö gildi í góðum samskiptum. Við munum vinna með sjö jákvæð gildi í samskiptum með því að segja sögur og skapa list sem tengjast gildunum. Við munu þannig efla tengsl barnanna og skilning á gildunum og styrkja sjálfsmynd þeirra.
Gildin sem fjallað verður um eru: vinátta, fyrirgefning, samkennd, gleði, traust, virðing og þakklæti.
Hvar?
Í Grensáskirkju, safnaðarheimilinu og kirkjunni. Gengið er inn um aðaldyr kirkjunnar.
Hvenær?
Á þriðjudögum kl. 16:30-17:40 og einn sunnudag kl. 11:00.
Dagskrá
Þriðjudaginn 7. mars - Vinátta.
Þriðjudaginn 14. mars - Fyrirgefning.
Þriðjudaginn 21. mars - Samkennd.
Þriðjudaginn 28. mars - Gleði.
Þriðjudaginn 11. apríl - Traust.
Þriðjudaginn 18. apríl - Virðing .
Sunnudaginn 23. apríl Þakklæti og uppskeruhátið.
Verið hjartanlega velkomin í Tíu til tólf ára starf í Grensáskirkju.
F.h. starfsfólks kirkjunnar, Sólveig Franklínsdóttir æskulýðsfulltrúi, séra Eva Björk Valdimarsdóttir, séra María Guðrúnar Ágústsdóttir, og séra Þorvaldur Víðisson.