Jazz tónlist, sálmar og notaleg stemning
Sunnudaginn 15. júní nk. kl. 20:00 fer fram kvöldmessa í Bústaðakirkju. Jazz tónlist leikin á flygilinn, sálmar sungnir og heimilislegt helgihald með bænum og hugleiðingu. Hjörtur Ingvi Jóhannsson annast um tónlistina, en hann leysir Jónas Þóri af, þennan sunnudaginn. Séra Þorvaldur Víðisson, flytur hugvekju og leiðir stundina ásamt messuþjónum.
Í guðspjallatexta dagsins segir frá er Nikódemus nálgast Jesú um nótt og spyr hann um Guðs ríkið. Jesús svarar honum á þann veg að maðurinn verði að fæðast að nýju til að geta séð Guðs ríki. Samtal þeirra er guðspjallatexti dagsins.
Verið hjartanlega velkomin í kvöldmessu í Bústaðakirkju.

Jazz tónlist leikin á flygilinn