Barnastarf í Grensáskirkju á sunnudögum
Krakkasálmar fara fram í Grensáskirkju alla sunnudaga kl. 11. Dagskráin hefst inni í messunni og þaðan ganga leiðtogarnir Iðunn, Fannar, Gabríel og Gréta með börnin í safnaðarheimilið þar sem sérstök dagskrá tekur við.
Krakkasálmar eru nýjung í starfi Grensáskirkju og skemmtilegur vettvangur fyrir börn á sunnudögum. Þar er sungið, leikið og farið inn í biblíusögurnar á lifandi og skemmtilegan hátt.
Mýsla mætir að sjálfsögðu með músakexið! 🐭
Að Krakkasálmum loknum er boðið upp á veitingar og notalega samveru þar sem við litum og leikum saman.
Verið hjartanlega velkomin í Krakkasálma í Grensáskirkju!
Umsjónaraðili/-aðilar