Guðsþjónusta í Bústaðakirkju – sunnudaginn 15. febrúar kl. 13:00.

 

Næsta sunnudag 15. febrúar, sem er sunnudagur í föstuinngangi í kirkjuárinu, verður guðsþjónusta í Bústaðakirkju kl. 13.

Nú gengur í garð tími föstunnar, sem er tími íhugunar þar sem við lítum inn á við og endurskoðum líf okkar, tími bænar, kyrrðar og þjónustu kærleiksverka.

Félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Hjartar Ingva Jóhannssonar. Sr. Laufey Brá Jónsdóttir og Hólmfríður Ólafsdóttir djákni leiða stundina ásamt kirkjuþjónum.

Allir velkomnir!