4. sunnudagur í föstu - Brauð lífsins

Sunnudaginn 15. mars verður sunnudagaskóli kl. 11 og guðsþjónusta kl. 13 í Bústaðakirkju. 

Í sunnudagaskólanum heyrum við skemmtilega sögu, við syngjum sunnudagaskólalögin og bregðum á leik.  Við spennur greipar og biðjum bænirnar saman.  Stundina leiðir reyndur leiðtogi og Jónas Þórir situr við flygilinn og leikur listir sínar.  

Í guðsþjónustu kl. 13 fáum við góða gesti í heimsókn.  Fyrrum félagar í kór Lágafellskirkju líta við og gleðja viðstadda með söng.  Sr. Sigríður Kristín þjónar fyrir altari.  Heitt verður á könnunni og gefst þá tími til að spjalla um daginn og veginn. 


Tendrum friðarljósin á bænaaltari kirkjunnar. 

Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju.

Vers vikunnar:

„Ef hveitikornið fellur ekki í jörðina og deyr verður það áfram eitt. En ef það deyr ber það mikinn ávöxt.” (Jóh 12.24)