Fjölskylduguðsþjónusta í Bústaðakirkju

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Við fáum til okkar góða gesti, yngstu meðlimi Skólahljómsveitar Austurbæjar ásamt Snorra Heimissyni stjórnanda sínum. Sólveig Franklínsdóttir, Jónas Þórir, Katrín Eir Óðinsdóttir, Hanna Jónsdóttir og sr. María Guðrúnardóttir Ágústsdóttir leiða stundina sem verður bæði hátíðleg og fjörleg með fullt af jólalögum, sögum og notalegri stemningu. Verum velkomin í Bústaðakirkju á aðventu og jólum.