Bleik messa í Grensáskirkju

Sunnudaginn 11. október kl. 11 komum við saman í trú, kærleika og samhug.

Guðsþjónustan ber bleikan blæ þar sem við stöndum með þeim sem takast á við krabbamein, minnumst þeirra sem við höfum misst og fögnum lífinu, kærleikanum og voninni.

Séra Laufey Brá Jónsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.

Kvennakórinn Vox Feminae gleður okkur með fallegum tónum og Ásta Haraldsdóttir, kantor Grensáskirkju, leikur á orgel.

Bleika slaufan, til styrktar Krabbameinsfélaginu, verður til sölu í Grensáskirkju á sunnudaginn.

Verið hjartanlega velkomin í Grensáskirkju.