Barnamessa í Bústaðakirkju
Sunnudaginn 15. nóvember kl. 11:00
Við munum leika og syngja, læra hinar ýmsu bænir og biblíusögur sem miðla góðum boðskap og gefa gott veganesti út í lífið.
Við ætlum að læra um gildi vináttunnar og þess að vera góð hvert við annað.
Brúður, leikir, söngvar, sálmar, litamyndir, bænir og margt fleira gera þessa stund að dýrmætri samveru fyrir alla fjölskylduna.
Umsjón með messunni hafa Marta, séra Laufey Brá og Ásdís Magdalena.
Umsjónaraðili/-aðilar