Æskulýðsstarf

Æskulýðsfélagið Pony er æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-10. bekk. Æskulýðsfundirnir fara fram í safnaðarheimili Grensáskirkju á þriðjudögum klukkan 20.00-21.30. Félagið er samstarfsverkefni Bústaðakirkju og Grensáskirkju. Þátttaka er ókeypis.

Æskulýðsfélagið er vettvangur unglinga til að leika, læra og efla bænalíf sitt í góðu og heilbrigðu umhverfi. Áhersla er á að hafa dagskrána fjölbreytta og skemmtilega. Félagið tekur virkan þátt í viðburðum og mótum ÆSKH og ÆSKÞ.

Umsjón með æskulýðsstarfinu hefur Sólveig Franklínsdóttir, æskulýðsfullltrúi ásamt leiðtogum og ungleiðtogum. Upplýsingar um starfið veitir Sólveig á solveig@kirkja.is.

Piparkökuskreytingarkeppni

Piparkökuskreytingarkeppni

Við ætlum að eiga góða stund saman og skreyta piparkökur, drekka heitt súkkulaði og hafa gaman saman.

Verðlaun fyrir flottustu piparkökuskreytinguna!

Leiðtogaknús!

 

Umsjónaraðili/-aðilar