Kyrrðarbænastundir kl. 18.15 á fimmtudögum

Í kapellu Grensáskirkju eru kyrrðarbænastundir á fimmtudögum kl. 18.15-19. Gott er að mæta tímanlega, koma sér vel fyrir og finna ró og frið. Þau sem eru að koma í fyrsta skipti fá leiðbeiningar um þessa einföldu leið til að dvelja í nærveru Guðs. 

Umsjón með stundinni hafa sr. Bára Friðriksdóttir og Ingunn Björnsdóttir frá Kyrrðarbænasamtökunum á Íslandi, ásamt sr. Maríu Guðrúnar. Ágústsdóttur, sóknarpresti.