Sunnudaginn 22. september kl. 11 er Fjölskylduguðsþjónusta í Grensáskirkju. Söngkonur frá Domus Vox gleðja okkur með söng sínum. Sigríður Kristín leiðir stundina og organisti er Ásta Haraldsdóttir. Í lok stundar fá 5 ára börn í sókninni Litlu Biblíuna að gjöf, myndskreytta bók sem herra Karl Sigurbjörnsson tók saman.  Verið hjartanlega velkomin.