Bach og Händel í bleikum október í Bústaðakirkju

Sunnudaginn 20. október kl. 13 er guðsþjónusta í Bústaðakirkju þar sem flutt verður tónlist eftir Bach og Händel. 

Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu og Gréta Hergils og Edda Austmann syngja einsöng. 

Kammerkór Bústaðakirkju undir stjórn Jónasar Þóris organista leiða söfnuðinn í söng.  

Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir þjónar fyrir altari. 

Verið hjartanlega velkomin.  

Styrkjum Ljósið og Krabbameinsfélagið í bleikum október