01
2024 maí

Mottumars í Bústaðakirkju

Mottumars er árlegt átak Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini hjá körlum. Sunnudaginn 10. mars vekjum við athygli á þessu átaki í messunni kl. 13 og á tónleikum Kammerkórs Bústaðakirkju kl. 15. Milli messu og tónleika verður hægt að setjast niður og spjalla yfir kaffibolla og meðlæti. Aðgangur er ókeypis en hægt verður að styrkja átakið með frjálsum framlögum. 

Í messunni ræðir Róbert Jóhannson, umsjónarmaður með Strákakrafti, stuðningshópi ungra karla sem greinst hafa með krabbamein, um reynslu sína. Gréta Hergils syngur einsöng og frumflutt verður ljóðið Kærleikur og friður eftir Sigurbjörn Þorkelsson. Sr. María G. Ágústsdóttir þjónar ásamt messuhópi, Jónasi Þóri og Kammerkór Bústaðakirkju. 

Á tónleikunum, sem eru klukkustundar langir, flytur Kammerkór Bústaðakirkju fjölbreytta tónlist, meðal annars lög eftir stjórnanda kórsins, Jónas Þóri, sem er organisti Bústaðakirkju. Einsöngvarar eru úr röðum kórsins, þau Edda Austmann, Gréta Hergils, Bjarni Atlason, Jóhann Friðgeir og Sæberg Svavarsson. 

Barnamessan verður auðvitað á sínum stað kl. 11 með Sólveigu, Iðunni, sr. Maríu og Jónasi Þóri. 

Verum velkomin í Bústaðakirkju - gjarna í Mottumarssokkum!

Staðsetning / Sókn