Gunnar Sigurðsson og Ólafur Sverrisson, félagsmenn Orðsins
Fermingarbörn Fossvogsprestakalls fengu góða heimsókn í fermingarfræðsluna í þessari viku. Gunnar Sigurðsson og Ólafur Sverrisson félagsmenn Orðsins komu færandi hendi og afhentu fermingarbörnunum Nýja testamentið að gjöf.
Orðið (áður Gídeon) er félagsskapur sem annast um útgáfu á Nýja testamentinu og Davíðssálmum sem félagið gefur fermingarbörnum, þeim að kostnaðarlausu.
Við þökkum félagsfólki Orðsins rausnarskapinn og hina dýrmætu gjöf og biðjum starfi félagsins blessunar til framtíðar.
Fermingarbörnin lærðu síðan í fletta í bókinni góðu